Hvort sem ferðalag þitt hefst með DNA eða sögu fjölskyldu þinnar þá viljum við að öllum líði vel í samfélaginu okkar. Við viljum því undirstrika eftirfarandi reglur um það sem er leyfilegt og bannað á Ancestry, til að tryggja að samfélagið verði áfram hvetjandi, öruggt og við hæfi allra. Ef þú rekst á eitthvað sem stríðir gegn þessum reglum þá máttu vinsamlegast Láta okkur vita þannig að við getum gert okkar besta til að bregðast við því sem komið hefur upp. Þínar athugasemdir eru okkur afar verðmætar og hjálpa okkur að gera Ancestry að öruggu og þægilegu umhverfi fyrir alla.
Aðgangur að síðu og öryggismál
Þegar þú notar Ancestry reikninginn þinn eða aðra Ancestry þjónustu þá:
- Verður þú að hlíta öllum gildandi lögum.
- Verður þú að vera með þinn eigin Ancestry reikning og velja einkvæmt notendanafn og aðgangsorð.
- Mátt þú ekki deila aðgangsorði Ancestry reikningsins þíns með öðrum.
- Mátt þú ekki leyfa barni undir 13 ára aldri að birta upplýsingar eða efni í gegnum Ancestry reikninginn þinn.
- Verður þú gefa upp gildar og heildstæðar tengiliðaupplýsingar, þ.m.t. netfang.
- Mátt þú ekki velja notendanafn sem er hatursfullt, dónalegt eða á annan hátt óviðeigandi, sem Ancestry er frjálst að ákvarða að eigin geðþótta.
- Mátt ekki gefa ranga mynd af því hver þú ert, hvorki gagnvart Ancestry né öðrum notendum.
- Mátt ekki trufla eða reyna að trufla þjónustuna, þar með talin notkun hugbúnaðar, vírusa eða stefa til að hamla, hylja, breyta efni eða vefsíðum Ancestry, eða valda skemmdum á hugbúnaði, vélbúnaði eða fjarskiptabúnaði annarra.
Samfélagsöryggi
Þegar þú notar Ancestry reikninginn þinn eða aðra Ancestry þjónustu þá máttu ekki:
- Birta eða deila efni sem er ólöglegt, ógnandi, skaðlegt, móðgandi eða á annan hátt óviðeigandi, þar á meðal efni eða samskipti sem eru niðrandi, ærumeiðandi, dónaleg, hatursfull, meiðandi, sviksamleg, ruddaleg, klámfengin, kynferðisleg, einkennast af kynjamisrétti eða kynþáttafordómum, eða virða ekki einkalíf annarra.
- Eltihrella, áreita, hóta eða ráðast með orðum á einhvern notanda eða starfsmann Ancestry, eða misnota þjónustu Ancestry, svo sem að sóa tíma starfsmanns Ancestry.
- Deila vísvitandi upplýsingum eða standa í samskiptum þar sem farið er með rangindi eða eru villandi, þetta á við um að villa á sér heimildir, fara með rangfærslur varðandi tengsl þín við einhvern einstakling eða aðila (þar á meðal Ancestry), fara með rangfærslur varðandi samþykki sem þú hefur ekki fengið, eða halda því ranglega fram að þú sért starfsmaður eða fulltrúi Ancestry eða fyrirtækjasamstæðunnar sem Ancestry tilheyrir.
- Birta eða deila efni sem inniheldur persónuupplýsingar, einkaréttindavarðar upplýsingar eða trúnaðarupplýsingar einstaklings, eins og myndir af lifandi einstaklingum, dómsskjöl sem kunna að hafa verið innsigluð, viðkvæmar bankaupplýsingar eða heimilisfang, símanúmer eða netfang einstaklings án þeirra samþykkis. Ef um er að ræða ólögráða einstaklinga þá munt þú þurfa að afla samþykkis foreldris eða forráðamanns þeirra.
Bera virðingu fyrir hugverkarétti
Þegar þú notar Ancestry reikninginn þinn og þjónustu Ancestry þá máttu ekki:
- Birta eða deila efni sem er varið af höfundarréttar- eða vörumerkjalöggjöf, eða sem tilheyrir þér ekki, þ.m.t. myndir og sagnfræðileg gögn sem aðrir notendur hafa birt, nema þú hafir skýlaust leyfi frá handhafa höfundarréttar eða vörumerkis fyrir slíkt efni. Ítarlegri upplýsingar er að finna íHöfundarréttarstefnu okkar.
- Endurskapa, vendismíða eða selja einhvern hluta af þjónustu Ancestry (þ.m.t. AncestryDNA prófunarsettum) eða efni Ancestry, eða kerfisbundið hala niður gögnum úr Ancestry gagnagrunnum til að búa til eða byggja upp annan gagnagrunn í öðrum tilgangi.
- Búa til djúptengla („deep link“) eða ramma, innskotstengla („inline link) eða spegla einhvern hluta af þjónustu Ancestry án skriflegs leyfis Ancestry.
Ruslpóstur er ekki heimilaður
Þú mátt ekki nota Ancestry reikninginn þinn eða þjónustu Ancestry (eða einhverjar upplýsingar sem fengnar eru í gegnum þjónustuna) til að birta eða veita aðgengi að auglýsingum, kynningarefni, ruslpósti, fjölpósti, keðjubréfum eða annars konar sölumennsku.
Find a Grave
Þegar þú notar Find a Grave skaltu hafa þessar viðbótarreglur í huga:
- Ekki misnota verkfæri til að leggja til leiðréttingar eða viðbætur eða senda skilaboð til annarra Find a Grave-meðlima um minnisvarða sem þeir hafa umsjón með.
- Vinsamlegast sýndu hugulsemi varðandi þá fjölbreyttu menningarlegu merkingu sem grafreitir hafa, svo og kirkjugarðar og hinir látnu. Við staðfestum að sum frumbyggjasamfélög leitast við að heiðra og merkja grafir sínar, á meðan önnur vilja ekki að grafir þeirra finnist, séu ljósmyndaðar eða birtar opinberlega. Ekki pósta, senda eða birta efni sem tekið er frá eða tilheyrir alríkis- og/eða ríkisviðurkenndum frumbyggjalöndum Ameríku og/eða meðlimum án þess að skýrt samþykki og leyfi frá viðkomandi og tengdu samfélagi hafi fengist, frá fólki eða ættbálkaþjóðum, eða ef þú ert ríkisborgari eða viðurkenndur fulltrúi ættbálkaþjóðarinnar sem um getur.
Lagalegar upplýsingar
Reglur Ancestry samfélagsins gilda um alla notendur þeirra þjónustuleiða sem Ancestry býður upp á (þ.m.t. Ancestry.com, AncestryDNA, Newspapers.com, Fold3, We Remember, Find a Grave og aðrar vefsíður og farsímaforrit Ancestry) og er ætlað að verja þig og allt Ancestry samfélagið. Öll hugtök með hástöfum sem notuð eru í þessum reglum skulu hafa sömu merkingu og sett er fram í Skilmálum og Persónuverndaryfirlýsingu Ancestry.
Þessi listi yfir óheimila hegðun er ekki tæmandi. Ancestry bannar notendum þjónustunnar að taka þátt í hvers kyns hegðun eða aðgerðum sem Ancestry, að eigin geðþótta, ákveður að séu móðgandi, skerði réttindi annarra eða valdi öðrum skaða. Ancestry getur ekki borið ábyrgð á því efni sem notendur okkar búa til eða deila innan samfélagsins, en við áskiljum okkur rétt til að fjarlægja allar færslur eða athugasemdir sem brjóta í bága við þessar reglur eða skilmála okkar.
Ancestry áskilur sér rétt til að loka fyrir reikning þeirra sem gerast sekir um alvarleg eða endurtekin brot eða lögbrot, að geðþótta Ancestry.